<>
-

Mexíkósk kjúklingasúpaLjúffeng mexíkósk kjúklingasúpa sem er borin fram með sýrðum rjóma, nachosflögum og rifnum osti.
Mexíkósk kjúklingasúpa 400 gr kjúklingakjöt 1 msk olía 1 stk laukur 6 stk plómutómatar skornir í bita 100 gr blaðlaukur smátt saxaður 1 rauð paprika smátt söxuð 1 stk grænt chili fínt saxað 2 tsk paprikuduft 3 msk tómatpurre 1,5 lítri kjúklingasoð (vatn og teningur) 2 dl salsa sósa 100 gr rjómaostur Meðlæti í súpuna • Sýrður rjómi
• Nachos flögur
• rifinn ostur
Aðferð;
Steikið saman í olíu kjúklingakjötið, laukinn, blaðlaukinn, paprikuna, grænt chilli og plómutómatana.
Bætið í paprikudufti og tómatpurré, blandið vel saman. Hellið saman við kjúklingasoðið og látið sjóða í 15- 20 mín við vægan hita.
Bætið salsasósu í súpuna ásamt klípum af rjómaostinum. Látið sjóða í 3-5 mín við vægan hita. Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, nachos flögum og rifnum osti.Höfundur: Árni Þór Arnórsson

