>
-

Djúpsteiktar ostakróketturOstakrókettur innihald 100 g kryddsmjör með blönduðum kryddjurtum 50 g hveiti 4 dl matreiðslurjómi 150 g rifinn paprikuostur 100 g rifinn óðalsostur 1,4 tsk cayenne pipar 10 blöð matarlím Til hjúpunar • hveiti
• egg
• brauðraspur
• ritzkex
Aðferð:
Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn. Bræðið kryddsmjörið í potti og blandið hveiti saman við. Hrærið vel saman, hellið mjólkinni saman við og látið sjóða við vægan hita í 4-5 mínútur gætið að því að hræra vel í allan tímann. Bætið í rifnum paprikuosti og óðalsosti ásamt cayenne pipar. Hrærið vel saman. Kreistið vatnið af matarlíminu og bætið því í blönduna, setjið í form svo blandan nái u.þ.b. 2,5-3,0 cm hæð. Kælið vel og að lokum skerið í u.þ.b. þumalstóra bita.Myljið ritzkexið saman við brauðraspinn og blandið vel saman. Veltið upp úr hveiti, eggi og í brauðrasp, svo aftur í egg og brauðrasp.Steikið í heitri olíu þar til bitarnir eru orðnir gullinbrúnir. Gefið með góðu salati og salsasósu.
Hentar vel sem áramóta og hlaðborðsréttur.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


