<>
-
_262_202.jpg)
LaxakörfurKörfur 15 stk 15 franskbrauðssneiðar • ólífuolía til pennslunar
Fylling 100 gr reyktur lax, skorinn í fína strimla 0,5 ds mascarponeostur 0,5 ds grísk jógúrt eða 1 ds sýrður rjómi 1 tsk fínt rifinn sítrónubörkur 0,5 tsk sítrónusafi 2 vorlaukar fínt saxaðir, eða sambærilegt magn af graslauk, geymið 1/2 matskeið til skreytingar • salt og pipar
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. Notið glas eða málmhring sem er u.þ.b. 7 cm í þvermál til þess að skera kringlóttar sneiðar innan úr brauðsneiðunum. Fletjið sneiðarnar með kökukefli og penslið þær með olíu. Þrýstið þeim niður í lítil mót sem búið er að pensla með olíu. Tilvalið er að nota kökumót fyrir litlar múffur. Bakið í 9–11 mínútur, eða þar til brauðið hefur tekið á sig gylltan lit. Látið kólna. Hrærið saman mascarpone-ost, gríska jógúrt, laxi, sítrónubörk, sítrónusafa og vorlauk. Saltið og piprið. Setjið fyllinguna í körfurnar. Hentugt er að nota sprautupoka með breiðum stút til þess. Dreifið vorlauk yfir til skreytingar.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir

