<>
-

Reyktur lax með graslaukspannacotta og sýrðu hvítkáliHentar vel sem forréttur fyrir 8 persónur eða sem smáréttur fyrir 16 persónur.
Innihald 16 sneiðar reyktur lax (16-20) 3 dl rjómi 2 blöð matarlím 1 dl ab-mjólk 1 dl sýrður rjómi 18% 2 msk saxaður graslaukur 1 msk fínt saxaður laukur • salt og nýmulinn svartur pipar
Sýrt hvítkál 200 gr hvítkál 50 gr laukur 2 msk saxaður graslaukur 2 msk ólífuolía 1 msk hlynsíróp • safi og börkur af 1/2 sítrónu
• salt og nýmulinn svartur pipar
Reyktur lax aðferð:
Klæðið lítil form eða kaffibolla með plastfilmu og klæðið svo með laxi. Setjið matalím í bleyti í kalt vatn hitið 3 dl af rjóma. Takið af hitanum og leysið matarlímið upp í rjómanum. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Bætið í ab mjólk og sýrðum rjóma að lokum stráið graslauk og lauk út i.
Hellið blöndunni í bollana og látið stífna minnst 4 tíma (Gott að laga daginn áður)
Sýrt hvítkál aðferð:Skerið hvítkálið í fína strimla, saxið laukinn blandið saman við olíu hlynsíróp og safa og börk af sítrónunni kryddið með salti og pipar.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson

