<>
-

Hráskinka með mozzarellaosti og hvítlauksrjómaostiForréttur fyrir 6 eða sem hluti af hlaðborðiInnihald 6 sneiðar hráskinka 1 stór kúla mozzarellaostur 50 g hvítlauksrjómaostur • klettasalat
Aðferð:Skerið mozzarellakúluna í sex bita. Setjið klípu af hvítaluksrjómaostinum á hverja sneið af parmaskinkunni. Bætið klettasalati á hverja sneið af hráskinku ásamt bita af mozzarellakúlunni, rúllið sneiðinni upp. Gott sem léttur forréttur eða hluti af hlaðborði.Gott er að skera rúllurnar í tvo bita ef þetta á að vera hluti af hlaðborði jafnvel að stinga í tannstöngli.Höfundur: Árni Þór Arnórsson


