Gott í matinn

Góð ráð í matargerð

Einföld leið til að bragðbæta pakkasósuna:

Það er tilvalið að nota matreiðslurjómann frá MS til að gefa tilbúnu pakkasósunni extra gott bragð. Þá er matreiðslurjóminn settur í sósuna í staðinn fyrir vatn eða mjólk. Matreiðslurjómi gefur heitu sósunni einstaklega gott og mjúkt rjómabragð.

Galdurinn bak við góðan hamborgara

Galdurinn á bak við góðan grillaðan hamborgara er að hakkið sé vel feitt, þá verður hamborgarinn safaríkur og bragðmikill. Kaupið því feitasta natuahakkið sem þið finnið eða kaupið feita nautasteik, hakkið hana og bætið út í nautahakkið.